top of page

Halloween brauð

8. bekkur lék sér með pizzadeig og mótuðu þau ýmiskonar skemmtileg brauð sem tengjast komandi skammdegishátíð "halloween"


uppskrift af pizzadeigi


Hráefni

  • 1 dl mjólk

  • 1 dl heitt vatn

  • 3 tsk þurrger

  • 1 tsk sykur

  • 1 /2 tsk salt

  • 1 egg

  • 3 msk matarolía

  • 6 til 6 ½ dl hveiti + hveiti til að hnoða upp í



Aðferð

  1. Blandið saman heitu vatni og mjólk í skál.

  2. Mælið gerið og stráið því í skálina.

  3. Setjið sykur, salt, egg og matarolíu út í skálina.

  4. Mælið hveitið og blandið því saman við.

  5. Hrærið vel þannig að deigið verði seigt.

  6. Látið deigið lyfta sér á volgum stað ef tími er til, gott er að það lyfti sér um helming.

  7. Takið til ofnplötu og pappír.

  8. Takið deigið úr skálinni, hnoðið það lítillega með hveiti og skiptið því í tvennt.

  9. Búið til það sem ykkur dettur í hug, fingur, drauga, hendi, fætur, grasker eða annað

  10. Notið graskersfræ, rúsínur og pizzasósu til að skreyta

  11. Bakið í ofni í ca 10 mínútur á 180°C


















22 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page