top of page

Tortillabitar (skyndi pizzasnúðar)

Í tímanum fórum við yfir eldhúsorðin, tengdum saman rétt orð við myndir og ræddum um ýmiskonar eldhúsorð


Nemendur bjuggu svo til tortillabita sem minna á pizzasnúða á einfaldan hátt


Hráefni

2 tortillakökur

1 dl rifinn ostur

1 dl pizzasósa

3 pepparóní sneiðar

2 skinkusneiðar

1/3 paprika


Aðferð

  1. skerið pepparóní, skinku og papriku í mjög litla bita

  2. mælið ostinn og sósuna í skál

  3. setjið pepparóní, skinku og papriku útí og hrærið

  4. smyrjið blöndunni á tortillakökurnar

  5. rúllið kökunum þétt upp

  6. skerið hvora köku í 5-6 bita og raðið á disk

  7. látið diskinn í örbylgju í 30-60 sek.



10 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page