top of page

Brauðstangir

Korn var umræðuefni dagsins þar sem við skoðuðum hvernig korn er uppbyggt, hvaða næringarefni er að finna í því, tegundir korns og vinnsla þess


Bakaðar voru svo brauðstangir. Uppskriftin er upprunrlega af nútíminn.is


Hráefni 2 og 1/2 dl volgt vatn 1 og 1/2 tsk þurrger 2 msk sykur 3 msk smjör, brætt 1 og 3/4 tsk sjávarsalt 6 og 1/2 dl hveiti

Til penslunar 3 msk smjör, brætt 1/2 tsk sjávarsalt 1/4 tsk hvítlaukskrydd 1/4 tsk ítalskt krydd

Aðferð

  1. Stillið ofninn á 200 gráður og blástur

  2. Setjið allt í hrærivélaskál nema hveitið

  3. Stillið hrærivélina á lægstu stillingu

  4. Bætið hveitinu saman við í skömmtum

  5. Hækkið hraðann á hrærivélinni og leyfið deiginu að hnoðast í 5-7 mínútur

  6. Takið deigið út og hnoðið á hveitistráðu borði

  7. Skiptið deiginu upp í 12 hluta

  8. mótið brauðstangir og setjið á bökunar plötu með bökunarpappír

  9. Setjið brauðstangirnar inn í ofn

  10. Bakist í 15-20 mín

  11. á meðan brauðstangirnar eru að bakast, blandið þá saman bræddu smjöri, salti, hvítlaukskryddi og ítölsku kryddi

  12. Penslið kryddblöndunni á stangirnar um leið og þær koma úr ofninum












15 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page