top of page

Lítil hvítlauksbrauð

Updated: Jan 25, 2022

Uppskrift af brauði

2 dl volgt vatn 3 1/2 tsk þurrger 1 tsk sykur 1 tsk salt 2 msk olía 5 dl hveiti

Aðferð

  • Setjið volgt vatn, ger og sykur í skál og látið standa í 5-10 mín eða þar til gerið fer aðeins að freyða.

  • Bætið restinni af innihaldsefnum saman við og hnoðið þar til deigið er slétt og vel saman sett. Má vera aðeins klístrað og er það í rauninni betra en að hafa það of stíft og seigt :)

  • Skiptið deiginu í tvennt og svo hverjum helming í 6-8 kúlur

  • Fletjið út í hring og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír

  • Smyrjið smjörinu á (uppskrift hér fyrir neðan)

  • Stráið með paprikukryddi yfir

  • Bakið í 10 mínútur

  • Takið út úr ofninum og stráið rifnum osti


Uppskrift af hvítlaukssmjöri

2 dl mjúkt smjör 1-2stk marið hvítlauksrif 1 tsk hvítlaukssalt

1 msk steinselja


Aðferð hvítlauksmjör

Blandið saman smjöri, hvítlauk, hvítlaukssalti og steinselju í skál svo úr verði hvítlaukssmjör


Ofan á brauðið 1 tsk paprikukrydd Rifinn ostur








5 views0 comments

Recent Posts

See All
Post: Blog2_Post
bottom of page